Mér finnst ég alltaf vera að leita á netinu af svona reiknivél sem reiknar fyrir mig hvað cm eru margar tommur. Mér finnst óþolandi að fólk skuli ekki bara notast við metra kerfið, hvað er málið með tommur!! Mér finnst það svo fáránleg mæli eining ég kemst ekki yfir það. Á meðan við notum millimetra, sentimetra, og metra þá eru bara 3 aðrir staðir í heiminum sem nota tommur og fet, BNA, Líbería sem er á vesturströnd afríku (ég hélt það væri altaf á austurströndinni) og Mjanmar (áður kallað Búrma) sem er stærsta ríkið á meginlandi Suðaustur-Asíu.
Minnsta mæli einingin okkar er millimeter sem er álíka stórt og bilið á milli punktana hérna.. Minnsta mæli eining þeirra er álíka stórt og bilið á milli þessa punkta ................................. sem er 2,54 cm. Ef þeir vilja mæla eitthvað minna þá er það bara 1/4 eða 1/8 af tommu.
Allavegana mér finnst þetta fáránlegt og alveg úrellt. En af því ég er í þannig námi þar sem mælieining er soldið stór hluti af því sem ég er að gera dagsdaglega þá ákvað að bæta við einum meðlim hérna til hliðar bara mér til skemmtunar.
ágúst 18, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
váááá ég er svo innilega sammála þér. ég hata líka þetta Pounds og stones, þú veist, í staðinn fyrir að segja bara ég er 50 kíló, þá er alltaf þetta " 5 pounds and 4 stones" eða eitthvað . OJJJJJ ég verð svo pirruð!
já hahaha óþolandi ! En hvað með þumla, notið þið ekkert þumlana í arkitektúr ? Það gæti orðið vel sniðug hús. Ætli smiðir séu allir með jafn langa þumla ????
Svo eru líka fet 6 fet og 2 þumlar :)
Hey, Google er með reiknivél. Farðu bara á www.google.com og þar geturu skrifað allt í tommum eða mílum eða fahrenheit og færð það út í cm, km og celsius.
EN -- ef þú vilt fá það hina leiðina (úr okkar mælieiningum í þeirra) skrifaru bara "5 centimeters in inches", mundu að skrifa "in" á milli. Prófaðu bara.
Svo eru leiðbeiningar hér: http://www.google.com/help/calculator.html
Sendu inn athugasemd