mars 04, 2009

Hár draumar

Mig dreymdi furðulegan draum í nótt. Þessar myndir komu við sögu. Ég átti að fara í klippingu hjá þekktum klippara hér í bæ, en svo týndi ég myndunum. Hann klippti samt ekkert hár sem betur fer. Það boðar ekki góðu að láta klippa sig. Er samt mikið að pæla í svona hári fyrir útskriftina, einhver blanda. Ég er líka með ákveðin kjól í huga en ég hef ekki séð hann enþá. Þetta verður erfitt.

2 comments:

Sibba sagði...

Ég mundi klárlega velja efstu til vinstri. Geðveik late seventies early eighties grúppíu greiðsla...

...EN víst við erum að ræða útskrift þá er það rauðhærða gellan til hægri.

Jonina de la Rosa sagði...

já held það sko... ég er allvegana sjúk í krullur akkúrat núna því stærri því betra !!